Spennahús á Flúðum
Nú er að rísa nýtt og glæsilegt spennahús á Flúðum sem mun gegna mikilvægu hlutverki í raforkuinnviðum svæðisins til framtíðar.
Áhersla hefur verið lögð á vandaða hönnun þar sem tæknilegar kröfur, öryggi og ásýnd mannvirkisins fara saman.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á að mannvirkið falli vel að staðháttum og umhverfi sínu. Hönnun byggingarinnar sækir innblástur í íslenskan byggingararf og landslag, þar sem efnisval og form stuðla að sterkri tengingu við náttúru svæðisins.
Stoð verkfræðistofa hefur annast hönnunarstjórn verkefnisins ásamt verkfræðihönnun, en Magnús Freyr hjá Gagn ehf. sá um arkitektahönnun og gerð aðaluppdrátta. Raflagnahönnun var í höndum Gísla Árnasonar og Örugg sá um brunahönnun mannvirkisins. Samstarfið hefur gengið ákaflega vel og eru þessir aðilar nú þegar farnir að vinna saman að fleiri álíka verkefnum fyrir RARIK.
Við óskum RARIK til hamingju með glæsilega byggingu og hlökkum til að fylgjast með framkvæmdinni taka á sig endanlega mynd á næstu mánuðum.
Hér má sjá myndir af framkvæmdarstað sem teknar voru í maí síðast liðnum, ásamt ásýndarmyndum Magnúsar Freys úr hönnunarferlinu.



