Atvinnulífssýning

Atvinnulífssýning Skagafjarðar var haldin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki um síðastliðna helgi. Sýningin hefur sannað sig sem frábær vettvangur til að sýna sig og sjá aðra, og það er óhætt að segja að Skagafjörður búi yfir fjölbreyttu atvinnulífi. Við tókum að sjálfsögðu þátt, nú sem fyrr – og við viljum þakka öllum þeim sem lögðu leið sína á básinn okkar. Takk fyrir skemmtileg samtöl – sjáumst næst!